Um mig:
Ég heiti Ragna Bjarney og ég kom í heiminn 18. apríl 2005, mömmu og pabba til mikillar gleði og ánægju. Ég var 3805 gr. (tæpar 16 merkur) og 54 cm, svo slétt og fín. Augun mín eru blágrá og ég er með koparlitað hár.
Þann 7. júlí 2007 varð ég svo stóra systir, en þá eignaðist ég lítinn bróður. Hann var 3920gr.(16 merkur) og 55 sm eða aðeins stærri en ég. Hann er ekkert voðalega líkur mér, en hann er samt með grá augu, og svo er hann með dökk skolleitt hár. Hann er alveg yndislegur og ég er rosalega hrifin af honum.
Mamma okkar heitir Inga Dóra og pabbi okkar heitir Heimir. Við erum litlu gullmolarnir þeirra :o)


Bara í dag....
-ætla ég að brosa til þín þegar augu okkar mætast og hlæja þegar mig langar frekar að gráta...
-ætla ég að leyfa þér að vakna mjúklega, vafinn inn í sængina þína, og halda á þér í fanginu þar til þú ert tilbúinn fyrir nýjan dag...
-ætla ég að leyfa þér að velja hvaða föt þú ferð í, brosa og hrósa þér fyrir "fullkomna" litasamsetningu...
-ætla ég að gleyma óhreina tauinu og fara frekar með þér út á leikvöll...
-ætla ég að geyma óhreinu diskana í vaskinum og hjálpa þér að leysa nýja púsluspilið þitt...
-ætla ég að slökkva á símanum og tölvunni og fara með þér út að blása sápukúlur...
-ælta ég að bjóða þér upp á ís í innkaupaferðinni, í stað þess að byrsta mig um leið og þú ferð að suða um hann...
-ætla ég ekki að hafa áhyggjur af því hvað þú ætlar að vera þegar þú verður stór...
-ætla ég ekki að hafa bakþanka um allar ákvarðanir sem ég tek í uppeldinu og fyrir þína hönd...
-ætla ég að leyfa þér að baka með mér bollur og ekki hnoða þær allar aftur þegar þú sérð ekki til...
Bara Í Kvöld....
-ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum þegar þú fæddist og hvers vegna mér þykir svona vænt um þig...
-ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu og ekki verða reið út af vatninu á gólfinu...
-ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða stjörnurnar á himninum...
-ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt, þó að ég missi þá af uppáhaldsþættinum mínum...
-ætla ég að dást að þér og vera þakklát fyrir að eiga gersemi eins og þig. Ég hugsa til mæðra sem hafa misst börn sín vegna veikinda eða slysa og mæðra sem dvel
EINKARÉTTUR SMÁBARNA Ef mér finnst það flott, þá á ég það Ef ég held á því, þá á ég það Ef ég næ því frá þér, þá á ég það Ef ég var með það rétt áðan, þá á ég það Ef ég á það, má það á engan hátt líta út fyrir að vera þitt Ef ég er að byggja eitthvað, þá á ég alla kubbana EF það líkist dótinu mínu, þá á ég það
|